Grunaður um rán og frelsissviptingu

Málið er í rannsókn, að því er segir í dagbók …
Málið er í rannsókn, að því er segir í dagbók lögreglu. mbl.is/Ari

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling í miðborginni sem er grunaður um rán og frelsissviptingu.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu sem gildir frá því klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun, en lögreglustöð 1 sinnti útkallinu.

Málið er í rannsókn, að því er segir í dagbókinni.

Tveir með ógnandi hegðun

Lögreglan sinnti einnig útkalli í miðbæ Reykjavíkur þar sem tveir einstaklingar höfðu uppi ógnandi hegðun við vegfarendur.

Þá var annar handtekinn vegna gruns um að akstur undir áhrifum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert