Hættustigi aflýst á Keflavíkurflugvelli

Vélin lenti á flugvellinum um þrjúleytið.
Vélin lenti á flugvellinum um þrjúleytið. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gulu hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli í dag vegna áætlaðs eldsneytisleka í flugvél. Hættustigi hefur nú verið aflýst, en vélin lenti á flugvellinum um þrjúleytið í dag. 

Staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia staðfestir þetta í samtali við mbl.is, en ríkisútvarpið greindi fyrst frá. 

Níu manns voru um borð vélarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert