Íslendingur fannst látinn á Spáni

Maðurinn lætur eftir sig fjögur börn.
Maðurinn lætur eftir sig fjögur börn. mbl.is

Íslenskur maður á miðjum aldri fannst látinn á Spáni á föstudaginn. Tildrög andlátsins liggja ekki fyrir að svo stöddu.

DV greindi fyrst frá og segir í umfjöllun miðilsins að maðurinn hafi verið 48 ára og láti eftir sig fjögur börn. Andlátið hafi borið óvænt að.

Marín Þórsdóttir, verkefnastjóri hjá heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra, staðfestir í samtali við mbl.is að íslenskur ríkisborgari hafi látist á Spáni á föstudaginn.

Kveðst hún hvorki hafa upplýsingar til að staðfesta aldur mannsins né að hann hafi verið fjögurra barna faðir.

Málið er á borði spænsku lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert