Langur brotaferill á Íslandi en aldrei í vinnu

Kourani á langan brotaferil að baki hér á landi.
Kourani á langan brotaferil að baki hér á landi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mohamad Kourani, sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps ásamt öðrum brotum, á langan brotaferil að baki hér á landi. 

Þetta var rifjað upp í dómnum sem var birtur á vefsíðu héraðsdómstólana í dag. 

Fyrsta brotið var skjalabrot

Fyrsta brot Kourani var framið í desember 2017, en þá var hann dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalabrot.

Hann kom til landsins í ársbyrjun 2017, og hlaut alþjóðlega vernd vorið 2018. Hann hefur aldrei stundað launaða vinnu hér á landi, en hefur hins vegar þegið opinbert fé til framfærslu.

Þá sat hann inni í 12 mánuði fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll sprenguhótanir, skjalafals, vopnalagabrot, umferðalagabrot og sjö brot gegn sóttvarnarlögum. Hann lauk þeirri afplánun í janúar.

„Samkvæmt sakavottorði ákærða var hann 19. desember 2017 dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalabrot. Þá var ákærði í Landsrétti 31. mars 2023 dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, fimm brot gegn valdstjórninni, tvær sprengjuhótanir, skjalafals, vopnalagabrot, umferðarlagabrot og sjö brot gegn sóttvarnarlögum og var með þeim dóm staðfest niðurstaða héraðsdóms 16. júní 2022.

Ákærði lauk 12 mánaða afplánun dómsins 26. janúar 2024. Eftir það var hann 14. mars sl. dæmdur í 14 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, valdstjórnarbrot, sprengjuhótun, tilraun til sprengjuhótunar og umferðarlagabrot. Sætir sá dómur áfrýjun fyrir Landrétti.“

Sakfelldur fyrir tilraun til manndráps

Í dóminum er einnig farið yfir árásina í OK Market í mars, þar sem hann réðst að tveimur mönnum með hníf, en hann var sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás og tilraun til manndráps.

„Brot ákærða voru framin af ásetningi og var vilji hans til ódæðisverkanna styrkur og einbeittur þegar hann veittist að ósekju og með ofsafengnum hætti að brotaþolum C og D og olli þeim töluverðu líkamstjóni. Ákærði hefur ekki sýnt merki iðrunar eða eftirsjár og ekki reynt að bæta ráð sitt, heldur þvert á móti haldið áfram af brotum með þeirri háttsemi sem hann er sakfelldur fyrir samkvæmt 5. og 6. ákærulið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert