Þriggja bíla árekstur í Kópavogi

Enginn er talinn alvarlega slasaður.
Enginn er talinn alvarlega slasaður. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þriggja bíla árekstur varð á Hafnafjarðavegi undir Hamraborg í Kópavogi á þriðja tímanum í dag.

Að sögn Harðar Lillendahl, varðstjóra í umferðadeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er enginn talinn alvarlega slasaður.

Mikil umferðateppa hefur myndast við svæðið og búist er við töfum á umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert