Hitinn slagar í 25 gráðurnar

Hitaspá klukkan 15 í dag.
Hitaspá klukkan 15 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Hitinn hefur náð sér vel á strik í Suður-Þingeyjarsýslu í dag og hefur náð að komast yfir 24 stig.

Eftir hádegi var 24,3 stiga hiti á Végeirsstöðum í Fnjóskadal, 23,6 stiga hiti á Reykjum í Fnjóskadal og 23,3 stiga hiti mældist á Fljótsheiði.

Á hálendinu er einnig hlýtt i veðri en hitamælirinn við Kröflu sýndi 21,4 stig, á Svartárkoti var hitinn klukkan 14 kominn í 20,3 og á Öxnadalsheiði 21,1.

Minnkandi líkur eru á að hitinn nái að rjúfa 20 stiga múr­inn næstu daga að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en þar segir þó að það geti helst gerst í innsveitum fyrir norðan.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert