SS hækkar afurðaverð á nautakjöti

SS hefur hækkað afurðaverð um 8% fyrir kýr, naut og …
SS hefur hækkað afurðaverð um 8% fyrir kýr, naut og alikálfa, og aðra flokka um 4%. Mbl.is/Styrmir Kári

Sláturfélag Suðurlands (SS) hefur ákveðið að hækka afurðaverð á nautgripakjöti um allt að 8%. Steinþór Skúlason forstjóri SS útskýrir í samtali við mbl.is að verðhækkunin til bænda sé nauðsynleg vegna sífellt aukins framleiðslukostnaðar og verðbólgu í landinu.

Afurðaverð hækkar um 8% fyrir kýr, naut og alikálfa, en aðrir flokkar hækka um 4%. Ný verðskrá tók gildi í gær. Að auki mun SS greiða 8% viðbót á afurðaverð nautgripa, í samræmi við stefnu félagsins um að tryggja samkeppnishæft verð og skila hluta af rekstrarhagnaði til bænda. 

Skortur á nautakjöti

„Innleggsverð nautgripa hefur ekki breyst í rúmt ár, svo það var kominn tími á leiðréttingu sem fellur innan marka verðbólgumarkmiða,“ segir Steinþór. „Einnig er skortur á framboði, svo hærra verð ætti að hvetja til aukinnar framleiðslu.“

Steinþór segir að það sé raunverulegur skortur á innlendu nautakjöti. „Það er engin bið eftir slátrun neins staðar, svo það er skortur á framboði. Þó alltaf verði eitthvað flutt inn, þá vantar aukið innlent framboð.“

Steinþór Skúlason forstjóri SS segir að það vanti aukið innlent …
Steinþór Skúlason forstjóri SS segir að það vanti aukið innlent framboð á nautakjöti. Mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hann tekur fram að innanlandsmarkaður fyrir nautakjöt hafi ekki breyst mikið og ekkert sé flutt út. „Þetta er bara innanlandsmarkaður, og við höfum ekki hækkað verð í rúmt ár á meðan aðrar kjöttegundir hafa hækkað. Það var kominn tími á að hækka nautgripakjötið.“

Að lokum leggur Steinþór áherslu á að verðbreytingin sé innan marka kjarasamninga, með það að markmiði að tryggja sanngjörn kjör fyrir bændur og neytendur.

SS vonast til að verðhækkunin leiði til aukinnar framleiðslu og betra jafnvægis á markaðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert