Þetta eru dýrustu og ódýrustu hamborgaramáltíðirnar

Hamborgari, franskar og gos er í huga margra hin fullkomna …
Hamborgari, franskar og gos er í huga margra hin fullkomna máltíð. Hún kostar þó sitt á veitingastöðum. mbl.is/Hákon Pálsson

Algengt verð á hamborgaramáltíð á veitingastað á höfuðborgarsvæðinu er í kringum þrjú þúsund krónur og hefur hækkað talsvert síðasta eitt og hálfa árið.

Óformleg könnun Morgunblaðsins leiðir í ljós að allir veitingastaðir hafa hækkað verðið og sumir umtalsvert.

Þetta er í þriðja sinn sem slík könnun er framkvæmd. Hin fyrsta var gerð í febrúar 2023 og sú næsta í júní sama ár. Nú, ári síðar, er ástandið engu betra og mjög í takt við þær fréttir sem reglulega berast af erfiðum rekstri veitingahúsa.

Hamborgaraverð er á uppleið.
Hamborgaraverð er á uppleið. Kort/mbl.is

Dýrast hjá Hamborgarafabrikkunni

Rétt eins og fyrr er dýrasta máltíðin hjá Hamborgarafabrikkunni. Fabrikkustöðunum hefur reyndar fækkað talsvert á þessu eina og hálfa ári en verðið hefur hækkað um 11%.

Nú kostar það 3.698 krónur að graðga í sig máltíð þar. Fjögurra manna fjölskylda pungar út tæpum 15 þúsund krónum fyrir herlegheitin.

Þá er ekki horft til þess að fjárfest sé í sósum eða öðru meðlæti og hvað þá að einhver leyfi sér munað á borð við bjór- eða vínglas með matnum.

Kannað var verð hjá níu veitingastöðum sem sérhæfa sig í hamborgurum og bjóða upp á að gestir geti sest niður og notið matarins.

Lesa má umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Árétting: Forvarsmenn Yuzu vilja koma því á framfæri að á Yuzu er sósa með frönskum innifalin í máltíðinni. Á öðrum stöðum sé rukkað í kringum 300 krónur fyrir sósu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert