Ákæra hefur verið gefin út á hendur manni sem grunaður er um að hafa stungið annan mann í Súðavík.
Þetta segir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, í samtali við mbl.is og bætir við að maðurinn sé ákærður fyrir tilraun til manndráps.
Ákæran hefur enn ekki verið birt en maðurinn er sá eini sem hefur réttarstöðu sakbornings í málinu.
Hefur hann setið í gæsluvarðhaldi síðan snemma í júní þegar hann var úrskurðaður í varðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna og gruns um að hafa stungið mann með hnífi í heimahúsi.
Gæsluvarðhaldið rann út í dag en hefur verið framlengt um fjórar vikur að sögn Karls Inga.