IKEA innkallar hleðslubanka vegna eldhættu

IKEA innkallar hleðslubanka vegna eldhættu.
IKEA innkallar hleðslubanka vegna eldhættu. AFP

IKEA innkallar ákveðna Varmfront hleðslubanka vegna eldhættu. 

Þetta segir í tilkynningu frá Ikea. Þar eru viðskiptavinir þeirra hvattir til þess að taka viðeigandi hleðslubanka úr umferð og skila þeim gegn nýjum hleðslubanka eða endurgreiðslu. 

Um er að ræða tvær tegundir Varmfront hleðslubanka:

„[Varmfront] 10 400 mAh (tegundanúmer E2023) með dagsetninguna (ÁÁVV) 2313, 2316, 2318 eða 2319, eða [Varmfront] hleðslubanka 5 200 mAh (tegundanúmer E2037) með dagsetningunni (ÁÁVV) 2318, 2319 eða 2322,“ að því er segir í tilkynningunni.

Varmfront hleðslubanki sem IKEA innkallar vegna eldhættu.
Varmfront hleðslubanki sem IKEA innkallar vegna eldhættu. Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert