Andlát: Magnús Már Kristjánsson

Magnús Már Kristjánsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, …
Magnús Már Kristjánsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, lést 8. júlí. Ljósmynd/Aðsend

Magnús Már Kristjánsson, prófessor við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, er látinn 66 ára að aldri. 

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, minnist Magnúsar í færslu á Facebook-síðu sinni og þakkar honum fyrir störf sín í þágu skólans.

Magnús fæddist í Reykjavík þann 27. ágúst 1957. Hann lauk stúdentsprófið frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977, BS-prófi í matvælafræði við Háskóla Íslands 1980, meistaragráðu í matvælaefnafræði frá Kaliforníuháskóla Davis árið 1983 og doktorsgráðu frá Cornell-háskóla í sömu grein árið 1988.

Gestakennari erlendis

Magnús starfaði sem sérfræðingur við Danmarks Tekniske Universitet árin 1988 til 1991 á sviði sjávaralíftæknis.

Hann varð síðar sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands frá 1991 til 1994 og fræðimaður frá 1994 til 1998. 

Hann hlaut dósentsstöðu við sama skóla í matvælaefnafræði árið 1999 og gegndi henni til 2008. 

Frá 2008 til 2009 gegndi hann stöðu dósents í lífefnafræði og síðan stöðu prófessors frá árinu 2009. 

Hann var deildarstjóri lífefnafræðideildar Raunvísindastofnunar frá 2009 til 2022 og vann sem gestakennari í Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi.

Skoðaði kuldavirk ensími

Magnús stundaði rannsóknir á próteinkljúfum úr sjávarlífverum, sem aðlagast hafa kulda, í samstarfi við vísindamenn hér á landi og erlendis. 

Með rannsóknum sínum skoðaði Magnús innri byggingar kuldavirkra ensíma og hvötunargetu þeirra. 

Rannsóknir þær hafa varpað ljósi á hvernig bæta megi ensím og aðlaga þau til hagnýtra nota í iðnaði.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert