Átján sakborningar fara fyrir dóm í ágúst

Átjæan sakborningar mæta í Héraðsdóm Reykjavíkur.
Átjæan sakborningar mæta í Héraðsdóm Reykjavíkur. Ljósmynd/Þór

Átján manns sem ákærðir eru fyrir grun um inn­flutn­ing, vörslu, sölu og dreif­ingu fíkni­efna mæta fyrir dóm 12. ágúst í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara. 

Umræður hafa sprottið upp vegna umfangs málsins og fjölda sakborninga. Vöknuðu þá upp spurningar hvort að réttarhöld færu fram í stærra húsnæði, svipað og gert var í Bankastrætismálinu. Karl  staðfesti að þess þyrfti ekki og að réttarhöldin muni fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á rúmlega sex kíló af kókaíni og amfetamíni. Einnig lagði lögregla hald á lyf, stera, fíkniefni, peningatalningavél, skotvopn og 40 milljónir króna í reiðufé.

Flest­ir sak­born­ing­anna voru hand­tekn­ir í aðgerðum lög­reglu um miðjan apríl, en þá stóð hóp­ur­inn fyr­ir komu tveggja manna sem fluttu fíkni­efni til lands­ins með skemmti­ferðaskipi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert