Ekki vitað hver ber á­byrgð á sprengingunni

Flugfarþegar í Leifsstöð.
Flugfarþegar í Leifsstöð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sprenging varð í brottfararsal Leifsstöðvar fyrr í dag. Starfsmaður reyndi að fjarlægja hlut af baðherbergi sem sprakk í höndum hans. Hlaut starfsmaðurinn minniháttar áverka. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 

Ekki er vitað hver var að verki eða hver tilgangur sprengingarinnar var.

Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan. 

„Klukkan 15:16 í dag fékk lögreglan á Suðurnesjum tilkynningu um minniháttar sprengingu sem varð á salerni í brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Starfsmaður sem var við vinnu við salerni veitti athygli litlum hlut sem hann fjarlægði með töng en við það sprakk hluturinn.

Starfsmaðurinn hlaut minniháttar meiðsli á fingrum. Lögreglan á Suðurnesjum naut aðstoðar sprengjusveitar sérsveitar ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar við að gera svæðið og önnur svæði örugg. Jafnframt kom tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og aðstoðaði við frekari vettvangsrannsókn. Frekari upplýsingar um hvað það var sem sprakk þarna liggja ekki fyrir.

 Engar upplýsingar liggja fyrir um hver var þarna að verki né um tilganginn. Vettvangsvinna er enn í gangi og líkur á næsta klukkutímanum.“

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert