Fresta malbikun Stekkjarbakka

Malbika átti Stekkjarbakka í dag.
Malbika átti Stekkjarbakka í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna frestast fyrirhuguð malbikun Stekkjarbakka í dag. 

Þetta kemur fram í tilkynningu sem barst í morgun. 

Fyrirhugað var að malbika Stekkjarbakka til Breiðholtsbrautar kl. 9 til 17 í dag.

Í gær þurfti einnig að fresta malbikun Geirsgötu vegna veðurs. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert