Loka göngu- og hjólabrú yfir Miklubraut

Talið er að vinnan taki tvo daga.
Talið er að vinnan taki tvo daga. Ljósmynd/Aðsend

Göngu- og hjólabrúin yfir Miklubraut við Rauðagerði verður lokað á næstu dögum á meðan endurnýjun á yfirborði brúarinnar stendur yfir. 

Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Vegamálun GÍH.

Brúnni verður lokað á meðan vinna á henni fer fram og þornun efna er í gangi. Talið er að vinnan taki tvo daga eftir því hvernig verkið gengur. 

Búið er að koma fyrir skiltum sem verða hulin á meðan brúin er opin og sýnileg þegar hún er lokuð. 

Vegfarendum er vísað á hjáleið um brúnna við Réttarholtsveg á meðan framkvæmdum stendur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert