Þjóðveginum við Jökulsárlón tímabundið lokað

Brúin yfir jökulsá á Breiðamerkursandi.
Brúin yfir jökulsá á Breiðamerkursandi. mbl.is/RAX

Brúnni við Jökulsárlón á þjóðvegi 1 verður lokað í hálftíma frá klukkan 19 í kvöld.

Brúin liggur yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi en unnið verður að viðgerð á legu brúarinnar.

Vegagerðin þarf reglu­lega að verja hundruð millj­óna í fyr­ir­byggj­andi aðgerðir og lag­fær­ing­ar til að hægt sé að koma í veg fyr­ir skemmd­ir á brúnni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert