Íslenski fjárhundurinn naut athyglinnar í gær

Hinn íslenski fjárhundur á sér sögu hér á landi allt …
Hinn íslenski fjárhundur á sér sögu hér á landi allt frá landnámi. mbl.is/Anton Brink

Dagur íslenska fjárhundsins var haldinn hátíðlegur í gær, 18. júlí.

Í Árbæjarsafni í Reykjavík var hægt að heilsa upp á hunda og eigendur þeirra sem glaðir svöruðu spurningum gesta í safninu um hinn íslenska fjárhund sem á sér sögu hér á landi allt frá landnámi.

Hundarnir voru hinir kátustu, nutu athyglinnar og vöktu mikla hrifningu viðstaddra, sem fengu að klappa hundunum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert