Kjarabót fyrir barnafólk í haust

Nýjar gjaldskrár taka gildi í öllum sveitarfélögum með haustinu og …
Nýjar gjaldskrár taka gildi í öllum sveitarfélögum með haustinu og skólamáltíðir verða jafnframt gjaldfrjálsar frá og með næsta skólaári. Ljósmynd/Colourbox

Aðkoma sveitarfélaga að forsendum kjarasamninga er loforð þeirra um að hækka gjaldskrár sínar ekki umfram 3,5% á árinu og bjóða ásamt ríkissjóði upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í öllum grunnskólum.

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins tekur aðspurður undir það að verkalýðshreyfingin hafi sýnt sveitarfélögum mikla þolinmæði.

Segir hann að þegar samningar voru undirritaðir í júlí hafi verið sett fram skilyrði um staðfestingu frá sveitarfélögunum um að þau myndu standa við sitt.

Sveitarfélögin sendu öll rafrænt samþykki sitt í kjölfarið.

Vilhjálmur Birgisson.
Vilhjálmur Birgisson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Beðið útfærslu á gjaldfrjálsum skólamáltíðum

Vestmannaeyjabær kynnti nýverið útfærslu gjaldskrárhækkana. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir lengra síðan bæjarráð samþykkti að hækka ekki gjaldskrár umfram 3,5% en tilkynnt hafi verið um ákvörðunina eftir að opinberi markaðurinn samþykkti samninga.

Einnig hafi verið beðið útfærslu á gjaldfrjálsum skólamáltíðum.

Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga taka nýjar gjaldskrár gildi í öllum sveitarfélögum með haustinu og skólamáltíðir verða jafnframt gjaldfrjálsar frá og með næsta skólaári.

Meira má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert