Skemmtiferðaskip á sextán hæðum sigldi til landsins

Skemmtiferðaskipið Mein Schiff 7 var eina nótt í Reykjavíkurhöfn.
Skemmtiferðaskipið Mein Schiff 7 var eina nótt í Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Árni Sæberg

Þýska skemmtiferðaskipið Mein Schiff 7 kom nýlega við hér á landi í tvo daga en skipið, sem státar af 16 hæðum og rúmar 2.525 farþega, er nú á leiðinni til Danmerkur áður en það heldur aftur heim til Þýskalands, en það sigldi til Íslands eftir að hafa komið við í Noregi.

Skipið er afar vel búið með bíósal, sundlaugum, leikhúsi og hárgreiðslustofu meðal annars. Sigurður Jökull Ólafsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna og formaður Cruise Iceland, segir í samtali við Morgunblaðið að mikil ánægja ríki meðal ferðamanna sem heimsækja Ísland.

Hann lýsir farþegum skipsins sem efnuðum ferðamönnum sem bóki ferðir fram í tímann og að skemmtiferðaskipið sé flott skip. „Við höfum sagt það lengi að þessi hópur af ferðamönnum er 12-13% af heildarferðamönnum,“ segir hann.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Um borð í skipinu er meðal annars sundlaug.
Um borð í skipinu er meðal annars sundlaug. mbl.is/Árni Sæberg
Veglegt íþróttahús er að finna í skemmtiferðaskipinu.
Veglegt íþróttahús er að finna í skemmtiferðaskipinu. mbl.is/Árni Sæberg
Skemmtiferðaskipið rúmar 2.525 farþega.
Skemmtiferðaskipið rúmar 2.525 farþega. mbl.is/Árni Sæberg
Farþegar á skemmtiferðaskipinu njóta þess að vera úti.
Farþegar á skemmtiferðaskipinu njóta þess að vera úti. mbl.is/Árni Sæberg

 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert