Tæpum 54 milljónum ríkari

Heppnin var með í þetta sinn.
Heppnin var með í þetta sinn. Ljósmynd/Colourbox

Heppnin bankaði svo sannarlega upp á í kvöld hjá einum heppnum lottó-þátttakanda sem hafði keypt sér miða í Lottó smáforritinu.

Endaði sá heppni með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins og er 53,9 milljónum króna ríkari fyrir vikið. 

Þá hlaut einn bónusvinninginn að þessu sinni og fær því 819 þúsund krónur beint í vasann. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri Getspá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert