Bráðaaðgerða þörf

Á malarkaflanum í Miðdölum þar sem klæðningin á veginum gaf …
Á malarkaflanum í Miðdölum þar sem klæðningin á veginum gaf sig. mbl.is/Sigurður Bogi

„Ástandið er slæmt en ábendingum okkar er ekki sinnt. Þó er í raun þörf á bráðaaðgerðum hér á svæðinu,“ segir Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð.

Sem kunnugt er gaf slitlag á Vestfjarðavegi í Miðdölum eftir snemma í vor svo moka þurfti klæðningu þar í burtu á allstórum kafla. Þar er nú aðeins ber malarvegur á svæði þar sem bílstjórar voru orðnir öðru vanir. Einnig fór klæðning af veginum í Svínadal og Saurbæ, meðal annars á kafla til móts við bæinn Bersatungu. Þá eru víða holur í brotnum vegum á svæðinu.

„Við í Dölunum upplifum hvað varðar vegamál mikinn aðstöðumun gagnvart öðrum landshlutum,“ segir Bjarki.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert