Verkefni vaktað og því skipt í áfanga

Mikil uppbygging er áformuð í landeldi í nágrenni Þorlákshafnar á …
Mikil uppbygging er áformuð í landeldi í nágrenni Þorlákshafnar á næstu misserum. mbl.is/Sigurður Bogi

Álit Skipulagsstofnunar á umhverfismatsskýrslu um fyrirhugað 20 þúsund tonna landeldi fyrirtækisins Thors landseldis sem verður í Ölfusi skammt vestan Þorlákshafnar, er almennt jákvætt. Telur stofnunin að veigamestu umhverfisáhrif eldisins verði á grunnvatn, en óvissa sé fyrir hendi um umfang þeirra og áhrif. Því verði að viðhafa umfangsmikla vöktun og áfangaskipta uppbyggingu fyrirtækisins, svo áhrif hvers áfanga liggi fyrir áður en hafist verður handa við þann næsta.

Thor fiskeldi áformar að byggja stöðina upp í þremur áföngum og er sá fyrsti þegar hafinn, en skóflustunga að seiðaeldisstöð fyrirtækisins var tekin fyrr í þessum mánuði. Auk þess að sótt verður um leyfi til eldis á laxi áformar fyrirtækið einnig að ala bleikju og regnbogasilung.

Fyrsti áfanginn felst í byggingu seiðaeldisstöðvarinnar með framleiðslugetu upp á 300 tonn af seiðum árlega og eldisstöðvar fyrir áframeldi á 5 þúsund tonnum af 6 kílóa fiski.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu sem kom út í gær

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert