Brynjuhúsið fékk andlitslyftingu

Húsið að Laugavegi 29 hefur verið auglýst til leigu.
Húsið að Laugavegi 29 hefur verið auglýst til leigu. mbl.is/Anton Brink

„Það eru þreifingar í gangi en ekki búið að ganga frá neinu enn,“ segir Gunnlaugur Þráinsson, fasteignasali hjá Borg.

Húsið að Laugavegi 29 þar sem verslunin Brynja var til húsa stendur enn autt. Versluninni var sem kunnugt er lokað árið 2022 eftir áratugarekstur og nýir eigendur festu kaup á húsinu. Það hefur síðan verið tekið rækilega í gegn og er orðið stórglæsilegt.

Samkvæmt upplýsingum úr fasteignaskrá er Drangáll ehf. eigandi hússins. Eigendur þess félags eru hjónin Júlíus Þorfinnsson og Þórunn Ásdís Óskarsdóttir. Júlíus er fyrrverandi framkvæmdastjóri Stoða og þau hjónin hafa gefið sig að endurgerð gamalla húsa, að sögn Gunnlaugs fasteignasala.

Nánari umfjöllun er að finna í laugardagblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert