Fá 5% af sölu kolefniseininga

Brekkurnar fyrir ofan Saltvík.
Brekkurnar fyrir ofan Saltvík. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Sveitarfélagið Norðurþing mun fá sem nemur 5% af sölu kolefniseininga í skógi Yggdrasils Carbon í landi Saltvíkur. Áður hafði sveitarstjórnarmaður greint frá því að sveitarfélagið myndi ekki græða fjárhagslega á skóginum, en það er ekki rétt, að því er fram kemur í skriflegu svari sveitarstjóra Norðurþings, Katrínar Sigurjónsdóttur, til Morgunblaðsins.

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti umsókn Yggdrasils Carbon um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar sunnan Húsavíkur í landi Saltvíkur, í janúar á þessu ári. Morgunblaðið fjallaði um skóginn á mánudag og var þar rætt við Þorkel Lindberg Þórarinsson, forstöðumann Náttúrustofu Norðausturlands. Taldi hann sveitarfélagið ekki hafa tekið tillit til athugasemda um náttúruvernd.

Því mótmælir sveitarstjórinn og segir að fyrirhuguðu skógræktarsvæði hafi verið breytt og því hliðrað til. Segir Katrín svæðið í heild sinni vera 160 hektara og af því landi eigi að planta trjám í um 120 hektara. Um 40 hektarar verða undanskildir skógrækt vegna umferðarleiða, berjasvæða og náttúruminja.

Þá er stefnt á að með tímanum verði þarna til gott útivistarsvæði fyrir íbúa Norðurþings auk þess sem skógurinn verður eign sveitarfélagsins að samningstíma loknum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert