Ungir sem aldnir fengu tækifæri til að taka þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla á Árbæjarsafni í gær.
Ungviðið virtist taka vel í að fara nokkra tugi ára aftur í tímann hvað verklag varðar og var áhugasamt um þau tök sem gáfust svo vel á árum áður.
Ólafur Árdal, ljósmyndari mbl.is, náði skemmtilegum myndum af því sem fram fór á Árbæjarsafni í gær.
Ef ekki væri fyrir borgarmyndina fyrir aftan er engu líkara er en þessi mynd sé tekin á engi í Flóanum á fimmta áratugnum.
mbl.is/Ólafur Árdal
Stund á milli stríða á meðan menn ráða ráðum sínum.
mbl.is/Ólafur Árdal
Sá stutti er áhugasamur um það sem fram fer.
mbl.is/Ólafur Árdal
Orf og ljá munduð við sláttinn.
mbl.is/Ólafur Árdal
Ungir sem aldnir hjálpuðust að.
mbl.is/Ólafur Árdal
Nýjum kynslóðum kennd tökin.
mbl.is/Ólafur Árdal
Ljáin brýnd
mbl.is/Ólafur Árdal
Tveir á túninu.
mbl.is/Ólafur Árdal
Ánægðir með dagsverkið.
mbl.is/Ólafur Árdal
Hið gamla og hið nýja mætast. Símtækið er tekið upp til þess að mynda þá sem sinntu heyönnum.
mbl.is/Ólafur Árdal