Þrír hafa smitast af hermannaveiki í ár

Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir staðfestir að það sé aðeins einn íbúi …
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir staðfestir að það sé aðeins einn íbúi smitaður en að þetta sé þriðja tilfellið á þessu ári. Samsett mynd/Árni Sæberg/Eggert Jóhannesson

Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir að aðeins einn sé með hermannaveikina eftir að legíónella fannst í lögnum í íbúðahúsi í Vatnsholti.

Þrír hafa smitast af veikinni á þessu ári, sem Guðrún segir að sé venjulegur fjöldi. Fjórir smituðust í fyrra.

Guðrún segir að einstaklingurinn hafi verið mjög lasinn en sé að jafna sig.

Legíonella-bakterían þolir hitastig frá 0-63°C, en kjörhitastig hennar er um það bil 30-40°C. Bakterían getur lifað árum saman í vatnstönkum við 2-8°C og sest oft í lokaða enda pípulagna í stórum byggingum þar sem vatnið stendur kyrrt og hitastigið er ekki hátt.

Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur

Getur þetta gerst í einbýlishúsum?

„Já, það er ekki útilokað. Þetta er algengara í stærri byggingum en það er ekkert útilokað að þetta gerist í einbýlishúsum,“ segir Guðrún. 

Bakterían er þó hættulítil fyrir fullfríska og unga einstaklinga en hún getur verið hættuleg fyrir þá sem hafa undirliggjandi áhættuþætti. Legíonella-smit er þó óalgengt og að sögn Guðrúnar er þetta eitthvað sem fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur staðið að útskolun síðustu daga í Vatnsholti og stefnir á að taka sýni á morgun til þess að athuga hvort bakterían sé enn í lögnunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert