Hlutfall útskrifaðra nýnema aldrei mælst hærra

MR-ingar dimittera árið 2019.
MR-ingar dimittera árið 2019. mbl.is/Hari

Brautskráningarhlutfall – hlutfall nýnema sem hefur útskrifast – í framhaldsskólum hefur ekki mælst hærra í tölum Hagstofunnar síðan árið 1995.

Rúm 64% þeirra sem voru nýnemar á framhaldsskólastigi árið 2018 höfðu útskrifast árið 2022. 

„Brotthvarf úr námi hefur verið nálægt 20% síðustu þrjú ár en 20,3% nýnema haustið 2018 höfðu hætt námi fjórum árum síðar,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.

„Rúmlega 15% nýnema haustsins 2018 voru enn í námi án þess að hafa útskrifast fjórum árum síðar og hefur það hlutfall ekki verið lægra.“

Hæsta hlutfallið hjá Íslendingum fæddum erlendis

Brautskráningarhlutfall mældist hæst, eða 80%, hjá nemendum sem voru fæddir erlendis en eiga foreldra sem báðir fæddust á Íslandi.

Alls höfðu 67% nýnema ársins 2018, með engan erlendan bakgrunn, útskrifast árið 2022.

64% þeirra sem fæddust erlendis og eiga eitt foreldri sem fæddist erlendis hafa lokið framhaldsskóla. 

Tæp 61% þeirra sem fæddust á Íslandi en eiga foreldra sem báðir fæddust erlendis hafa útskrifast en 57% þeirra nemenda sem fæddust á Íslandi og eiga eitt foreldri fætt erlendis.

Lægsta hlutfallið meðal innflytjenda

„Lægst var brautskráningarhlutfallið á meðal innflytjenda, þ.e. þeirra sem fæddust erlendis og eiga báða foreldra fædda erlendis, en tæplega 41% þeirra höfðu útskrifast fjórum árum eftir upphaf náms,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að brautskráningarhlutfall hafi farið hækkandi á meðal innflytjenda en það sé enn mun lægra en á meðal nýnema með íslenskan bakgrunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert