Tveir í fangageymslu vegna ráns og líkamsárásar

Verkefni lögreglu eru fjölbreytt.
Verkefni lögreglu eru fjölbreytt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vistaði tvo í fangageymslu vegna rannsóknar á ráni, vörslu fíkniefna og líkamsárás.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Ekki koma fram nánari upplýsingar um hin meintu afbrot, en lögreglustöð eitt sinnti málinu. Hún sinnir verkefnum í stórum hluta borgarinnar og á Seltjarnarnesi.

Slagsmál, fíkniefni og hótanir

Þá var annar vistaður í fangageymslu eftir slagsmál. Ýmis önnur brot eru til rannsóknar hjá lögreglu, eins og varsla fíkniefna og hótanir. Lögreglustöð eitt sinnti málinu.

Sama lögreglustöð handtók tvö vegna rannsóknar á vörslu fíkniefna. 

Lögreglustöð tvö, sem sinnir verkefnum í Garðabæ og Hafnarfirði, hafði afskipti af manni sem gat ekki greitt fyrir þjónustu leigubifreiðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert