Ættum frekar að endurbæta samræmdu prófin

Samræmdu prófin hafa ekki verið hald­in hér á landi síðustu …
Samræmdu prófin hafa ekki verið hald­in hér á landi síðustu ár og ekk­ert hef­ur komið í stað þeirra. mbl.is/Hari

„Viðskiptaráð hefur tekið þátt í uppbyggingu menntakerfisins í yfir hundrað ár. [...] Menntun er grundvöllur öflugs mannauðs, lýðræðis og samkeppnishæfni. Hún varðar þjóðarhag og allir eru gjaldgengir í umræðu um hana. Það voru því vonbrigði að sjá viðbrögð menntamálaráðherra og formanns Kennarasambandsins, sem brugðust ókvæða við ábendingum okkar.“

Þetta segir Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs spurður út í gagnrýni á umsögn ráðsins í samráðsgátt stjórnvalda, við þau áform mennta- og barnamálaráðuneytisins að afnema samræmd könnunarpróf.

Prófin hafa ekki verið hald­in hér á landi síðustu ár og ekk­ert hef­ur komið í stað þeirra, þrátt fyr­ir að skólayfirvöld hafi lýst fyrirætlunum þess efnis þegar þau lögðu prófin af.

Af­nám þeirra hef­ur hlotið gagn­rýni úr ýms­um átt­um, meðal ann­ars inn­an úr menntavís­inda­sviði Há­skóla Íslands og nú síðast frá fyrrverandi skólastjóra Melaskóla.

Skilað Íslandi einum lakasta námsárangri í Evrópu

Að mati Viðskiptaráðs ættu stjórnvöld að hætta við afnámið og grípa þess í stað til aðgerða til að tryggja jafnræði og aukið gagnsæi.

„Í áformum ráðuneytisins felst sama stefna og skilað hefur Íslandi einum lakasta námsárangri í Evrópu,“ segir Björn.

„Viðhalda á kerfi þar sem grunnskólabörn njóta ekki jafnræðis og árangur af skólastarfi verður hvergi birtur opinberlega. Við viljum aðra nálgun.“

Til upprifjunar er Ísland í sjötta neðsta sæti allra OECD-ríkj­anna þegar horft er til heildarniðurstaðna síðustu PISA-könnunar, sem kynntar voru í desember og mbl.is fjallaði ítarlega um.

Ekk­ert OECD-ríki lækk­ar jafn mikið milli kannana og aðeins eitt Evrópuland er neðar: Grikkland.

Grundvallaratriði að námsmatið sé samræmt

En er ekki líka ósanngjarnt að meta hæfni grunnskólanema út frá einu samræmdu könnunarprófi?

„Viðskiptaráð hefur hvergi talað fyrir því að eitt próf eigi að ráða tækifærum grunnskólabarna. Við erum fylgjandi því að námsmat sé þróað og bætt í takt við það sem best tíðkast í skólastarfi.

Það getur til dæmis verið í formi fleiri og styttri prófa, eins og starfshópur um námsmat lagði til. Grundvallaratriðið er að námsmatið sé samræmt og niðurstöðurnar öllum aðgengilegar.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert