Myndskeið: Krítverjarnir verði ákærðir fyrir manndrápstilraun

Myndskeið úr öryggismyndavélum á barnumn sýnir hvernig árásin hófst.
Myndskeið úr öryggismyndavélum á barnumn sýnir hvernig árásin hófst. Skjáskot/Cretalive

Handtökuskipun vegna tilraunar til manndráps hefur verið gefin út á hendur tveimur mönnum sem réðust á íslenska konu og fjölskyldu hennar á Krít fyrr í mánuðinum.

Þá hafa krítverskir miðlar birt myndskeið sem sýnir upphafið af árásinni.

Hinn grísk-kanadíski Emmanuel Kakoulakis, 49 ára, hefur legið þungt haldinn á spítala eftir að hópur Krítverja réðst á hann og fjölskyldu hans á bar á Heraklíon á grísku eyjunni Krít í síðustu viku.

Eiginkona Emmanuels, Yana Sana, er íslenskur ríkisborgari og varð einnig fyrir árásinni auk barna sinna þriggja, samkvæmt umfjöllun DV.

Verði ákærðir fyrir manndrápstilraun

Lög­regl­an hef­ur, með aðstoð fjöl­skyld­unn­ar, borið kennsl á tvo gerendur, 31 árs mann frá Mýlópóta­mós og einn 32 ára mann frá sveit­ar­fé­lag­inu Malevízi.

Héraðssaksóknari í Heraklíon hefur nú gefið út handtökuskipanir á hendur þeim en þó á eftir að bera kennsl á tvo menn til viðbótar.

Cretalive birti afmáða mynd af vettvangi þar sem sjá mátti …
Cretalive birti afmáða mynd af vettvangi þar sem sjá mátti blóðuga stéttina. Skjáskot/Cretalive

Patrís greinir frá því að handtökuskipun hafi verið gefin út og kveðst hafa heimildir fyrir því að mennirnir verði ákærðir fyrir tilraun til manndráps.

Cretalive  segir að lögreglan hafi upprunalega ákært fyrir líkamsárás en þegar málið var sent til héraðssaksóknara hafi verið ákveðið að ákæra einnig fyrir tilraun til manndráps.

Myndskeið sýnir upphafið

Í sam­tali við gríska fjölmiðla í síðustu viku sögðu konan og synir hennar frá atburðarrásinni. Nú hafa miðlar birt myndskeið úr öryggismyndavélum, sem lögreglan hefur m.a. stuðst við.

Svo virðist sem maður úr stórum hópi Krítverja hafi rekið log­andi sígarett­ustubb á höndina á Emmanuel, hugs­anlega óvart, þegar sá síðarnefndi gekk fram hjá.

Þá á Emmanuel að hafa snúið sér að Krít­verj­an­um og brýnt fyr­ir hon­um að fara var­lega, en fjöl­skyld­an tek­ur sér­stak­lega fram að hann hafi gert það á vina­leg­an hátt.

Út frá því munu mennirnir hafa reiðst og þá hóf­ust bar­smíðarn­ar fyr­ir utan bar­inn.

Íslenska kon­an og 14 ára dótt­ir henn­ar reynd­u að stöðva árás­ar­menn­ina er þeir veittu föðurn­um högg á höfuð og búk. Á end­an­um mættu viðbragðsaðilar og þrjót­arn­ir flúðu vett­vang. Á mynd­um má sjá blóðuga stétt eft­ir lík­ams­árás­ina. Fjöl­skyld­an var öll flutt á spít­ala en verstu áverkarnir voru á Emmanuel.

Framkvæmdu húsleitir

Samkvæmt Cretalive voru húsleitir framkvæmdar í Mýlópóta­mós í morgun, þar sem einn hinna grunuðu er talinn búa. Lögreglan leitaði einnig í sama húsi morguninn eftir líkamsárásina.

Þetta mál er eitt af fjölmörgum sem komið hafa upp á eyjunni í sumar og hafa margir lýst áhyggjum af ofbeldisfaraldrinum sem hefur skekið eyjuna. 16 ára drengur varð einnig fyrir líkamsárás sömu nótt og ráðist var á umrædda fjölskyldu en málin eru í raun ótengd.

Eyjan er afar vinsæll ferðamannastaður og fara fjölmargir íslenskir ferðamenn þangað ár hvert. Ferðamálaráðherra Grikklands er meðal þeirra sem hefur sent fjölskyldunni kveðju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert