Kviknaði í bíl hjá Hrafnistu

Bifreiðin hlaut einhverjar skemmdir.
Bifreiðin hlaut einhverjar skemmdir. Ljósmynd/Aðsend

Eldur kviknaði í framsæti Renault-sendiferðarbifreiðar nærri Hrafnistu á Norðurbrún. 

Vakthafandi slökkviliðsmaður hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að slökkviliðsmenn hafi verið fljótir á vettvang og náð tökum á eldinum áður en hann dreifði sér. 

Eldurinn afmarkaðist við bifreiðina sem skemmdist eitthvað.

Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert