Vilja bílhræin burt

Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir bæjaryfirvöld afskaplega ánægð með að verkefnið sé …
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir bæjaryfirvöld afskaplega ánægð með að verkefnið sé loksins komið á skrið. mbl.is/mbl.is

Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða hefur límt límmiða á annað hundrað númerslausra bíla, langflesta innan Ísafjarðarbæjar eða 68 talsins í sérstöku átaki. Gulur miði er límdur á bílana sem tilkynning um meðferð máls með einnar viku fresti og rauður miði er límdur sem tilkynning um stjórnvaldsákvörðun og lokafrestur gefinn.

Að loknum lokafresti er bíllinn fjarlægður á kostnað eiganda en kostnaður er tryggður með lögveðsrétti í húsi, lóð eða tæki og getur heilbrigðiseftirlitið krafist uppboðs til greiðslu.

Fólk að átta sig á alvörunni

Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir bæjaryfirvöld afskaplega ánægð með að verkefnið sé loksins komið á skrið.

„Það eru ekki númerslausir bílar í öllum götum en það eru bílar á ákveðnum stöðum og þetta er ákveðið vandamál sem hefur fengið að vera óáreitt.“ Arna segir að í gegnum tíðina hafi verið límt á bíla en svo ekkert gert í kjölfarið. „Það gengur auðvitað ekki. Það er verið að fylgja þessu eftir núna með fínum árangri og ég held að fólk sé að átta sig á því að okkur er alvara með þessu.“

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, miðvikudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert