Harður árekstur á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar

Tveir voru fluttir á sjúkrahús.
Tveir voru fluttir á sjúkrahús.

Harður árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar á ellefta tímanum í kvöld. Fólksbíll og jeppi rákust saman og ökutækin skemmdust talsvert í árekstrinum samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu í Reykjavík. 

Tveir voru fluttir á bráðamóttöku. Báðir einstaklingar voru með meðvitund en ekkert er hægt að fullyrða um meiðsl þeirra að svo stöddu. 

Miklubraut og Lönguhlíð voru lokaðar fyrir umferð um stund en opnað var að nýju fyrir skemmstu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert