Forstjórinn á gestalista Höllu

Halla Tómasdóttir, tilvonandi forseti Íslands, og Björn Skúlason, verðandi forsetaherra, …
Halla Tómasdóttir, tilvonandi forseti Íslands, og Björn Skúlason, verðandi forsetaherra, ásamt Agli Jóhanssyni, forstjóra Brimborgar eftir bílakaup verðandi forsetahjóna. Ljósmynd/Brimborg

Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, er á lista yfir þá sem sækja Bessastaði við embættistöku Höllu Tómasdóttir til forseta Íslands.

Þetta má sjá á lista forsætisráðuneytisins um þá sem munu þekkjast boð verðandi forsetans við embættistöku hennar. Alls verða 110 sem sækja athöfnina í Smiðjunni svokölluðu á Bessastöðum þann 1. ágúst næstkomandi. 

Bílakaupin vakið athygli 

Vísir sagði fyrst frá fyrirhugaðri veru Egils við athöfnina. Vera hans þar myndi eflaust ekki vekja svo mikla athygli nema fyrir þær sakir að bílakaup Höllu hjá Brimborg í vikunni hafa vakið athygli.

Bæði er Halla sögð hafa fengið góð kjör við kaup á bílnum auk þess sem athygli vakti þegar mynd birtist á samfélagsmiðlum í auglýsingaskyni af verðandi forsetahjónum og Agli við hlið hins nýja bíls. 

Óhætt er að segja að það væri nýlunda ef forseti lýðveldisins ákveður að taka þátt i auglýsingarherferðum fyrirtækja en þessu verður þó að taka með þeim fyrirvara að Halla hefur enn ekki svarið embættiseið. 

Halla hafi samþykkt myndatöku 

Halla sendi fyrr í kvöld frá sér tilkynningu þar sem hún segir að myndbirting af henni hafi verið birt á samfélagmiðlum Brimborgar án hennar vitundar en Egill Jóhannesson, forstjóri Brimborgar, segir í samtali við RÚV fyrr í dag að Halla hafi veitt leyfi fyrir myndatökunni. Hann víkur hins vegar ekki að því hvort Halla hafi samþykkt myndbirtingu á samfélagsmiðlum.

Þá segir Halla í færslunni að ekki hafi verið um sérstök kjör sem hún hafi fengið við bílakaupin, heldur hafi hún fengið staðgreiðsluafslátt, líkt og hún fékk síðast þegar hún keypti bifreið hjá Agli.

Alls hafa 110 manns þekkst boð Höllu á Bessastaði,  fjórir hafa ekki svarað en tíu hafa afþakkað boðið geta.  

Hér má sjá lista þeirra sem mæta þangað. 

  • Egill Jóhannsson
  • Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson
  • Aldís Pálsdóttir
  • Andri Þór Guðmundsson og Marína Magnúsdóttir
  • Ari Hálfdán Aðalgeirsson og Tinna Eir Kjærbo
  • Arndís Sigurgeirsdóttir og Bára Kristinsdóttir
  • Auður Björk Guðmundsdóttir og Ægir Birgisson
  • Ásdís Kristins og Svanur
  • Auður Ólafsdóttur
  • Baldvin Valdimarsson og Laufey Hauksdóttir
  • Berglind Björk Jónsdóttir
  • Birgir Sigfússon og Sara Lind Þrúðardóttir
  • Birgir Tryggvason og Vigdís Jóhannsdóttir
  • Björn Gíslason og Karólína Gunnarsdóttir
  • Birna Jónsdóttir og Sigfús Kárason
  • Birna Ósk Einarsdóttir
  • Björg Ingadóttir
  • Björk Þórarinsdóttir
  • Dista Friðbjarnardóttir
  • Edda Hermannsdóttir og Ríkharður Daðason
  • Erla Ósk Ásgeirsdóttir og Andri Heiðar
  • Eyþór Guðjónsson og Þóra
  • Guðbjörg Edda Eggertsdóttir
  • Guðfinna Bjarnadóttir
  • Guðmundur Kristjánsson
  • Gullveig Theresa
  • Hafdís Bjarnadóttir og Friðrikka Sigurðardóttir
  • Haraldur Jónsson
  • Helga Ragnheiður Stefánsdóttir
  • Hörður Arnarson og Guðný Hallgrímsdóttir
  • Hilmar Kjartansson og Svava
  • Hjördís Sigurðardóttir og Sveinbjörn
  • Hrefna Sigurfinnsdóttir
  • Hreggviður Jónsson og Hlín Sverrisdóttir
  • Hrund Rudólfs
  • Hrönn Ríkharðsdóttir
  • Huld Konráðsdóttir
  • Hulda Bjarnadóttir
  • Hanna Lára Helgadóttir
  • Harpa Káradóttir
  • Ingveldur María Hjartardóttir
  • Jasmina Vajzovicc
  • Jenný Stefánía Jensdóttir
  • Jensína Böðvarsdóttir
  • Jóhann Eyvindarson
  • Jóhann Hjartarson og Jónína Ingvadóttir
  • Jóhanna og Jónína Waagfjörð
  • Jóhanna Pálsdóttir
  • Jón Björnsson og Lovísa
  • Jón Diðrik Jónsson og Jóna Þorvaldsdóttir
  • Katrín Olga Jóhannesdóttir
  • Kolbrún Hrund Víðisdóttir
  • Kristín Magnúsdóttir
  • Kristín Pétursdóttir
  • Kristján Gíslason
  • Kristjan Jóhannesson og Sigurjóna Sverrisdóttir
  • Kristjana Björk Barðdal
  • Kristmann Magnússon og Hjördís Magnúsdóttir
  • Kristmundur Carter og Stefanía Ólöf
  • Linda Björk Ólafsdóttir og bogi Þór Siguroddsson
  • Magnea Þórey Hjálmarsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson
  • Magnús Ingi Óskarsson
  • Margrét Dagmar Ericsdóttir og Þorsteinn
  • Margrét Íris Ármann
  • Margrét Kristmannsdóttir
  • Margrét Pála Ólafsdóttir
  • Margrét Sanders
  • María Ellingsen
  • María Maríusdóttir
  • María Másdóttir
  • Matthildur Sigurðardóttir
  • Marta Guðjónsdóttir
  • Októ Einarsson
  • Ólafía Rafnsdóttir
  • Ólöf Salmon Guðmundsdóttir
  • Páll Þórhallsson
  • Pétur Sigurðsson
  • Pétur Þór Halldórsson
  • Ragnheiður Aradóttir
  • Ragnheiður Jóna Jónsdóttir og Arnór Víkingsson
  • Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Daði Runólfsson
  • Ragnhildur Guðjónsdóttir
  • Rakel Olsen
  • Rannveig Grétarsdóttir
  • Rannveig Guðmundsdóttir og Sverrir Jónsson
  • Reynir Grétarsson
  • Sigrún Ragna Ólafsdóttir
  • Sigrún Traustadóttir
  • Sigurborg Arnarsdóttir og Helgi Ólafsson
  • Sigurður Valtýsson og Berglind
  • Sigurjón Friðjónsson
  • Sigurjón Sighvatsson og Sigríður
  • Sigurlaug Jóhannsdóttir
  • Sigþrúður Ármann
  • Sólrún Smáradóttir
  • Sveinn Andri Sveinsson
  • Thor Ólafsson og Svava Björk Hjaltalín
  • Una Steinsdóttir
  • Valdís Arnarsdóttir og Guðmundur Hrafnkelsson
  • Vigdís og Gerald Hasler
  • Vilborg Gunnarsdóttir
  • Ýr Gunnlaugsdóttir
  • Þóra Gunnarsdóttir
  • Þórunn Anna Karlsdóttir og Vilhjálmur Andri Kjartansson
  • Þóranna Jónsdóttir
  • Þráinn Farestveit og Ólöf
  • Amna Hasecic
  • Anna Birna Jensdóttir
  • Anna Traustadóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert