Nýjar þrívíddarmyndir sýna rúmmál hraunsins

Flatarmál hraunsins er 13,6 ferkílómetrar.
Flatarmál hraunsins er 13,6 ferkílómetrar. Ljósmynd/Loftmyndir ehf.

Fyrirtækið Loftmyndir ehf. hefur  mælt rúmmál og flatarmál hraunsins við Grindavík og birt myndir sem sýna flæði og magn hraunsins vel. 

Fyrirtækið sérhæfir sig meðal annars í loftmyndatöku, gerð myndkorta og landlíkana. Nýju myndirnar voru birtar á Facebook-síðu fyrirtækisins. 

Myndirnar nýju sýna að flatarmál hraunsins er 13,6 km2 eða 1.360 hektarar og heildar rúmmál þess er nærri 150 milljónir rúmmetra. 

Loftmyndirnar sýna flatar- og rúmmál hraunsins.
Loftmyndirnar sýna flatar- og rúmmál hraunsins. Ljósmynd/Loftmyndir ehf.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert