Olli slysinu en slasaðist ekki sjálfur

Harður árekstur tveggja bíla á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar á …
Harður árekstur tveggja bíla á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar á ellefta tímanum í gærkvöldi.

Ökumaður fólksbílsins, annars tveggja bíla sem lentu í hörðum árekstri á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar í gærkvöldi, var í órétti þar sem hann ók yfir á rauðu ljósi.

Sá bílstjóri virðist óslasaður, en farþegar í jeppanum sem ekið var í veg fyrir eru með minniháttar meiðsli.

Þetta staðfestir Unnar Már Ástþórsson, aðal­varðstjóri hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, í samtali við mbl.is.

Líðan slasaðra er góð

Líðan ökumanna og farþega sem lentu í hörðum árekstri á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar í gærkvöldi er góð.

Ökumennirnir fengu aðhlynningu á vettvangi frá sjúkraflutningamönnum áður en þeir voru sendir á bráðamóttökuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert