Búið að finna manninn sem beraði sig

Atvikið átti sér stað þegar konan var á leiðinni heim …
Atvikið átti sér stað þegar konan var á leiðinni heim úr miðbænum. mbl.is/Arnþór

Búið er að finna manninn sem elti konu og beraði kynfæri sín fyrir henni í nótt. Hann var handtekinn og bíður nú yfirheyrslu.

Þetta segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. 

Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið á bifreið og elt fótgangandi konu. Hann á að hafa farið úr bifreiðinni og kallað á eftir konunni með buxurnar niðri um sig þannig að getnaðarlimur hans blasti við.

Konan komst heim til sín heil á húfi, að því er segir í dagbókinni.

Ekki undir áhrifum 

Atvikið átti sér stað á fjórða tímanum í nótt þegar konan var á leiðinni heim úr miðbænum. Hún er á þrítugsaldri en maðurinn á sextugsaldri. 

Engin sýni voru tekin af manninum og bendir ekkert til þess að hann hafi verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert