Hópur dengja á grunnskólaaldri réðst á annan dreng í Kópavogi. Árásarþolinn hlaut skrámur í andliti.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Dagbókin nær til verkefna lögreglu frá klukkan 17 í gær til 05 í morgun.
Í dagbókinni segir að drengirnir hafi haldið árásarþola niðri og veist að honum. Talið er mögulegt að barefli hafi verið beitt.
„Lögregla hitti árásarþola og föður hans á vettvangi en árásarþoli var með skrámur í andliti eftir á þar sem árásaraðilarnir voru farnir,“ segir í dagbókinni.
Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.