Lögreglan lýsir eftir My Ky Le

Ekki er vitað um klæðnað My Ke Le en líklegast …
Ekki er vitað um klæðnað My Ke Le en líklegast er hann með derhúfu, að sögn lögreglu. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hinum 52 ára My Ky Le en ekkert er vitað um ferðir hans frá því um hádegi á föstudag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. My Ky Le, sem er til heimilis að Bústaðavegi í Reykjavík, er tæplega 170 sm á hæð og 70-75 kg.

Hann er svarthærður, með brún augu og húðflúr á vinstri handlegg. Ekki er vitað um klæðnað hans en líklegast er hann með derhúfu. Hann hefur yfir að ráða bifreiðinni FK-U20 og sást til hennar nálægt Álftanesi síðdegis í gær.

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir My Ky Le eru beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert