Skoða vöxt í Múlakvísl

Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi yfir Múlakvísl.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi yfir Múlakvísl. mbl.is/Jónas Erlendsson

Þyla Landhelgisgæslunnar er nú í rannsóknarflugi yfir jökulhlaupinu úr Mýrdalsjökli sem hófst í dag.

Jökulhlaup er hafið í Skálm austan Mýrdalsjökuls. Jökulvatn flæðir yfir þjóðveginn á svæðinu og hafa skemmdir orðið á veginum að Skálmárbrú.

Vísindamenn frá Háskóla Íslands, almannavarnadeil ríkislögreglustjóra og Veðurstofunni eru um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar að kanna vatnavöxtinn.

Jónas Erlendsson, fréttaritari mbl.is, er við Múlakvísl og segið mikið af vatni komið í ána.

Gripið hefur verið til rýmingar í nágrenni Sólheimajökuls. Ekki er útilokað að lítið eldgos hafi valdið hlaupinu.

Skemmdir eru á öðrum endanum á Skálmarbrú og er vegurinn í sundur. 

Fluglitakóði fyrir Kötlu hefur verið færður upp á gult sem getur merkt að eldstöðin sýni merki um virkni „umfram venjulegt ástand,“ samkvæmt vef Veðurstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert