Rétt fyrir hádegi barst hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Landmannalaugum útkall vegna ferðamanna sem höfðu fest bíl sinn á leið yfir yfir Kirkjufellsós við Tungnaá, austan við Kýlingavötn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg. Fram kemur að félagar úr björgunarsveitinni Ægi í Garði hafi brugðist skjótt við og haldið á staðinn.
Veðurstofan gaf í gær út gula viðvörun vegna úrkomu á Suður- og Suðausturlandi og miðhálendi. Tók hún gildi í nótt, aðfaranótt sunnudags.
„Þegar að var komið var fólkið komið út úr bílnum og hélt til á þaki hans. Björgunarmaður með straumvatns björgunarbúnað óð til þeirra og aðstoðaði fólkið í land. Þau voru gegnblaut, mikið vatn hafði flætt inn í bíl þeirra, og talsvert köld. Þau voru vafin í ullarteppi þegar þau komu í land og færð í bíl björgunarsveitarinnar. Bíll fólksins var svo losaður úr ánni,“ segir í tilkynningunni.
Þá tókst björgunarfólki að gangsetja bílinn og var hann fluttur ásamt ferðalöngunum að aðstöðu hálendisvaktarinnar í Landmannalaugum, þar sem þeirra beið heitt kakó og vel kynt hús.