Handtekinn grunaður um alvarlega líkamsárás

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einstaklingur var handtekinn grunaður um alvarlega líkamsárás eftir að brotaþoli kom á spítala til aðhlynningar.

Grunaður gerandi fannst stuttu síðar og var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Sá er nokkuð þekktur hjá lögreglu.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Dagbókin nær til verkefna lögreglu frá klukkan 05 í morgun til klukkan 17 í dag

Ölvaður maður til vandræða í verslun

Lögreglu var einnig tilkynnt um ölvaðan mann til vandræða í verslun í miðborginni. Í dagbókinni segir að eftir samtal við lögreglu hafi maðurinn gengið sína leið.

Í dagbókinni segir að tilkynnt hafi verið um þjófnað í verslun og að málið hafi verið afgreitt með hefðbundnum hætti.

Lögregla stöðvaði einnig ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert