Hringvegurinn verði opnaður í dag

Vegurinn er nú lokaður.
Vegurinn er nú lokaður. Ljósmynd/Sveinbjörn Darri Matthíasson

Búist er við að hægt verði að opna fyrir umferð um hringveginn milli Vík­ur og Kirkju­bæj­arklaust­urs seinni partinn í dag eða í kvöld. Þá verður umferð stýrt og hægt að aka um aðra akreinina. 

Þetta segir Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Vík, í samtali við mbl.is.

Skemmd­ir urðu á veg­in­um vegna jök­uls­hlaups sem hófst í gær. Nú er unnið að viðgerð, en að sögn Ágústs koma um 20-30 manns að verkinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert