Ók á nokkrar bifreiðar

Maðurinn var ölvaður.
Maðurinn var ölvaður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ökumaður ók á nokkrar bifreiðar við fjölbýlishús í Reykjavík. Bifreiðarnar eru mikið skemmdar sem og útveggur byggingarinnar.

Þetta kem­ur fram í dag­bók lög­regl­u. Dag­bók­in nær til verk­efna lög­reglu frá klukk­an 17 í gær til 05 í morg­un.

„Vitni á vettvangi bentu á aðila sem stóð á vettvangi sem ökumanninn sem olli umferðarslysinu,“ segir í dagbókinni. Segir að hann hafi verið var ölvaður. Var hann handtekinn og vistaður í klefa.

Þá kemur fram að bifreiðarnar séu mikið skemmdar. Einnig sé útveggur byggingarinnar skemmdur þar sem ein bifreiðin hafi kastaðist á vegginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert