Þyrlan kölluð út vegna slyss við Kerlingafjöll

Ekki er vitað um alvarleika slyssins.
Ekki er vitað um alvarleika slyssins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrir skemmstu eftir að göngumaður lenti í slysi við Kerlingafjöll. Ekki er vitað um alvarleika slyssins. 

Þetta segir Hreggviður Símonarson, hjá bakvakt aðgerðarsviðs Land­helg­is­gæsl­unn­ar, í sam­tali við mbl.is. 

Um er að ræða einn göngumann en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert