Þó nokkrir bílar dregnir úr Hólmsá

Þrír bílar skildir eftir við vaðið.
Þrír bílar skildir eftir við vaðið. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir aðstoðuðu ferðalanga sem vegna vegalokana á Mýrdalssandi freistuðu þess að komast Fjallabaksleið vestur fyrir Mýrdalsjökul síðdegis í gær.

Draga þurfti þó nokkra bíla úr Hólmsá og voru þrír bílar skildir eftir við vaðið, þar af einn rafmagnsbíll sem var óökuhæfur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

„Töluverð umferð varð um þessa leið og var einhverjum snúið frá sökum þess að bifreið viðkomandi gæti lent í erfiðleikum, sérstaklega þar sem á leiðinni eru óbrúaðar ár og töluverðir vatnavextir voru á þessum slóðum,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert