Færeyingar hóta afleiðingum

Færeyingar vilja aðild að Norðurlandaráði.
Færeyingar vilja aðild að Norðurlandaráði. mbl.is/mbl.is

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður og formaður Norðurlandaráðs, segir að Aksel V. Johannesen, forsætisráðherra Færeyja, hafi greint frá því skýrt í stefnuræðu sinni í gær að Færeyingar vilji núna fulla aðild að Norðurlandaráði.

„Hann talaði um að þau hefðu í heil 50 ár verið að bíða eftir því að fá fulla aðild að Norðurlandaráði. Sagði að þolinmæðin væri á þrotum og að nú vildu þau sjá einhvern árangur, annars þyrftu þau að grípa til einhverra róttækra aðgerða,“ segir Bryndís í samtali við Morgunblaðið.

Bryndís Haraldsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Bryndís Haraldsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mikilvægt að finna leiðir

Bryndís er stödd í Færeyjum á Ólafsvöku og í gær var þingsetning þar sem forsætisráðherrann fór með ræðu sína um stefnu ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur. Hún segir Færeyinga vera að vinna með svipaða leikbók og Grænlendingar, en grænlenski forsætisráðherrann hefur gefið það út að hann hyggist ekki taka þátt í norrænu samstarfi á næstunni.

„Ég met það sem svo að það séu krítískir tímir hjá okkur í Norðurlandaráði og þar af leiðandi mjög mikilvægt að við finnum leiðir til að halda utan um þetta norræna samstarf og sjá til þess að okkar góðu vinir og nágrannar, bæði í Grænlandi og Færeyjum, fari ekki að yfirgefa norrænt samstarf,“ segir hún.

Bæði Færeyjar og Grænland fá tvo fulltrúa hvort í Norðurlandaráði í boði Danmerkur, en eru ekki fullgildir aðilar.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert