Skjálfti skekur Reykjanes

Skjálftinn mældist kl. 21.11 í kvöld.
Skjálftinn mældist kl. 21.11 í kvöld. mbl.is/RAX

Skjálfti af stærðinni 3 mældist við Reykjanestá upp úr kl. 21 í kvöld. 

Nokkrir smærri eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið en að svo stöddu virðist hann ekki vera hluti af stærri hrinu, að sögn náttúruvársérfræðings, sem segir einnig að enginn órói fylgi þessari virkni heldur.

Skjálftinn mældist í 3,4 km dýpi kl. 21.11 í kvöld. Upptök hans voru um 0,4 km frá Reykjanestá en engar tilkynningar hafa borist til Veðurstofu um að hans hafi orðið vart við í byggð. 

Skjálftinn er af stærðinni 3.
Skjálftinn er af stærðinni 3. Kort/Map.is

Engin merki um aukna virkni

Aðspurð segir Minney Sigurðardóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, að engin frekari merki sjáist um aukna virkni annars staðar á Reykjanesskaganum að svo stöddu.

Skjálftavirkni á þessu svæði er tíð og hefðbundin. Í gærmorgun varð skjálftahrina norðvestur af Eldey þar sem stærsti skjálftinn mældist einnig 3,2 að stærð. 

Í jarðskjálftahrinu í ágúst 2023 mældist stærsti skjálftinn 4,5 að stærð og í október árið 2022 var skjálfti af stærð 4,4.

Varað við gosi á næstu dögum

Sem fyrr greinir bendir ekkert til þess að svo stöddu að órói hafi fylgt skjálftavirkninni sem mældist fyrr í kvöld. 

Veðurstofan varaði aftur á móti í dag við því að auknar líkur væru á kviku­hlaupi og eld­gosi á næstu dög­um.

Skjálft­um á Sund­hnúkagígaröðinni hefði fjölg­að hægt og sér­fræðing­ar teldu næg­an þrýst­ing hafa byggst upp í kerf­inu til að koma af stað nýj­um at­b­urði.

Auk­in smá­skjálfta­virkni mæld­ist á Sund­hnúkagígaröðinni í gær og stóð yfir í um 50 mín­út­ur.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert