Vegaframkvæmdir hafnar vegna Hvammsvirkjunar

Framkvæmdir við veginn eru hafnar þó virkjunarleyfi sé ekki enn …
Framkvæmdir við veginn eru hafnar þó virkjunarleyfi sé ekki enn í höfn.

Framkvæmdir við vegagerð vegna fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar eru hafnar, en verið er að leggja veg upp frá Landvegi að Hvammi í Landsveit þar sem áformað er að virkjunin rísi. Fyrirtækið Þjótandi annast lagningu vegarins.

Einnig er verið að undirbúa að leggja grunn að vinnubúðum á svæðinu, ásamt lagningu veitukerfa fyrir þær og framkvæmdasvæðið í heild.

Ekkert virkjunarleyfi

Virkjunarleyfi liggur þó ekki fyrir enn, en skv. upplýsingum frá Þóru Arnórsdóttur, forstöðumanni samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, er búist við að Orkustofnun gefi út leyfið í síðasta lagi í lok ágústmánaðar.

Þegar það liggur fyrir verður sótt um framkvæmdaleyfi til viðkomandi sveitarfélaga.

Auk framkvæmda við Hvammsveg stendur til að leggja nýjan Búðafossveg auk brúar, en farið verður í það verkefni þegar leyfi fyrir virkjuninni eru í höfn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert