Gistinætur á hótelum í júní voru tæplega 479.500 eða um 6% færri en á fyrra ári.
Blikur hafa verið á lofti í ferðaþjónustunni en eftirspurn eftir ferðum til landsins hefur fækkað samanborið við síðasta ár og töluvert færri gistinætur mældust á hótelum í öðrum landshlutum.
Samkvæmt nýjust tölum Hagstofunnar mælist 1% aukning á höfuðborgarsvæðinu en töluvert færri gistinætur mældust á hótelum í öðrum landshlutum. Gistinóttum fækkaði um 27% á Austurlandi og 17% á Suðurnesjum.
Áætlaður heildarfjöldi gistinátta á öllum skráðum gististöðum í júní var um 1.099.800 sem er sambærilegt við júní 2023.
Heimamenn virðast hafa aukið aðsókn sína á hótel landsins samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar. 20% gistinátta voru bókaðar af Íslendingum, eða 97.600 gistinætur.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru 381.900, eða 80% af hótelgistinóttum.
Fjölda gistinátta erlendra ferðamanna fækkaði um 8% en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 5%.
Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 655.500 og um 444.300 á öðrum tegundum skráðra gististaða t.d. íbúðagistingu og orlofshúsum.
Þar fyrir utan er áætlað að óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í júní hafi verið um 130.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 13.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 4.000.
Fréttin var uppfærð 4. ágúst með leiðréttum upplýsingum Hagstofunnar.